Skilmálar netverslunar Gítarskólans
1. Upplýsingar um seljanda
Heimasíðan og netverslunin gitarskolinn.is (hér eftir nefnd Gítarskólinn) er í eigu og rekin af Pixelmedia ehf., kt. 691216-0710, hér nefnt “seljandi”.
2. Almennt
Eftirfarandi skilmálar gilda um öll viðskipti milli seljanda og þín sem kaupanda, sem og notkun á netverslun seljanda.
Um þjónustuviðskipti gilda lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við á.
Í netverslun seljanda eru í boði: - stök netnámskeið og stafrænt kennsluefni - áskriftir að kennsluefni, hóptímum og viðbótarþjónustu - staðnámskeið, vinnustofur og hópnámskeið með tilgreindri upphafs- og lokadagsetningu
Allt kennsluefni sem selt er í netverslun seljanda er hugverk seljanda og/eða kennara hans sem höfunda og er eingöngu ætlað til einkanota kaupanda. Óheimilt er að afrita, dreifa, birta eða endurnýta efnið, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis seljanda.
3. Verð
Öll verð í netverslun seljanda eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt þar sem það á við.
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verðum án sérstaks fyrirvara. Verð sem birt er við kaup gildir þó fyrir viðkomandi viðskipti.
4. Greiðslur og afhending
Greiðslur fara fram í gegnum viðurkennda og örugga greiðslugátt. Hvað með kvittun eða greiðslustaðfestingu?
Aðgangur að netnámskeiðum, stafrænu efni og áskriftum er að öllu jöfnu veittur innan 24 klst. frá móttekinni greiðslu, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Komi upp ófyrirséðar aðstæður getur afhending dregist, án þess að það teljist vanefnd.
Aðgangur að netnámskeiðum er veittur í að lágmarki eitt (1) ár frá kaupdegi, nema annað sé sérstaklega tekið fram við kaup.
5. Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Netnámskeið, áskriftir og annað stafrænt kennsluefni eru ekki endurgreidd eftir að aðgangur hefur verið veittur til kaupanda.
Staðnámskeið, vinnustofur og hóptímar: - eru endurgreidd að fullu eða færð í inneign ef tilkynnt er um forföll með tilgreindum fyrirvara skv. grein 7- eru ekki endurgreidd eftir að námskeið er byrjað.
Beiðnir um endurgreiðslu eða inneign skulu berast skriflega á gitarskolinn(hja)gitarskolinn.is
6. Námskeið, bókanir og breytingar
Bókanir byggja á reglunni fyrstur kemur, fyrstur fær og fullnaðargreiðsla þarf að hafa verið móttekin til að tryggja pláss á námskeiði.
Seljandi áskilur sér rétt til að gera breytingar á dagskrá, tímasetningu eða staðsetningu námskeiða ef ófyrirséð atvik gera það nauðsynlegt.
Verði námskeiði aflýst af hálfu seljanda fá þátttakendur val um fulla endurgreiðslu eða flutning yfir á annan dag eða sambærilegt námskeið, ef slíkt er í boði.
7. Forföll og skipti á þátttakanda (staðnámskeið)
Afbókanir og forföll skulu berast skriflega á gitarskolinn(hja)gitarskolinn.is.
· Tilkynni kaupandi forföll með minnst 48 klst. fyrirvara fyrir upphaf námskeiðs er boðin full endurgreiðsla eða inneign.
· Berist tilkynning síðar en 48 klst. fyrir upphaf námskeiðs áskilur seljandi sér rétt til að halda eftir hluta eða öllu námskeiðsgjaldi.
Heimilt er að senda annan þátttakanda í stað þess sem forfallast, enda sé seljanda tilkynnt um slíkt með hæfilegum fyrirvara.
8. Áskriftir
Áskriftir veita aðgang að kennsluefni, hóptímum og/eða viðbótarþjónustu á meðan áskrift er virk.
Áskriftir eru greiddar fyrirfram og endurnýjast sjálfkrafa þar til þeim er sagt upp. Uppsögn tekur gildi við lok yfirstandandi greiðslutímabils.
Greidd áskrift er ekki endurgreidd, óháð nýtingu.
Takist ekki að gjaldfæra áskrift verður reynt að gjaldfæra aftur í hæfilegan tíma. Takist gjaldfærsla ekki áskilur seljandi sér rétt til að loka tímabundið fyrir aðgang þar til greiðsla hefur borist.
9. Hóptímar, umgengni og trúnaður
Kaupanda ber að sýna öðrum þátttakendum virðingu í hóptímum, samfélagi og samskiptum tengdum námskeiðum og áskriftum.
Óheimilt er að birta, dreifa eða endurnýta upplýsingar, umræður, myndir eða upptökur sem tengjast öðrum þátttakendum nema með skýru samþykki þeirra.
10. Upptökur af hóptímum og „Spurt og svarað“ (Q&A)
Seljandi áskilur sér rétt til að taka upp hóptíma, „Spurt og svarað“ (Q&A)-fundi og sambærilega viðburði í tengslum við námskeið og áskriftir.
Upptökur eru eingöngu gerðar aðgengilegar innan lokaðs aðgangssvæðis Gítarskólans og eru ekki birtar opinberlega.
11. Tæknimál og ábyrgð
Kaupandi ber sjálfur ábyrgð á eigin búnaði, nettengingu og hugbúnaði sem nauðsynlegur er til þátttöku í netnámskeiðum og rafrænum viðburðum.
Seljandi ber ekki ábyrgð á truflunum eða tjóni sem rekja má til tæknilegra vandamála hjá kaupanda eða þjónustuaðilum þriðja aðila.
12. Samningur. Breytingar á skilmálum
Með staðfestingu á kaupum a þjónustu Gítarskólans, telst kaupandi hafa kynnt sér og samþykkt skilmála þessa um viðskiptin og telst þá kominn á bindandi samningur á milli kaupanda og seljanda um kaupin.
Um persónuverndarmálefni kaupanda, vísast til Persónuverndarstefnu Gítarskólans á heimasíðu hans.
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara. Uppfærðir skilmálar taka gildi um leið og þeir eru birtir á vefsíðu Gítarskólans.
13. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur vegna þeirra skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Þessir skilmála gilda frá og með:
16. desember 2025.