Persónuverndarstefna Gítarskólans


1. Inngangur

Persónuverndarstefna þessi útskýrir hvernig Gítarskólinn (gitarskolinn.is), í eigu Pixelmedia ehf., kt. 691216-0710, vinnur með persónuupplýsingar viðskiptavina (þ.m.t. áskrifenda) í tengslum við netverslun, áskriftir og stafræna kennslu. Pixelmedia ehf. er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga í skilningi laga.

Stefnan er sett fram í samræmi við: * Lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga

2. Hvaða persónuupplýsingum er safnað

Við söfnum aðeins þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að efna samning við viðskiptavin og reka netverslun og kennslukerfi:

·     Nafn

·     Netfang

·     Símanúmer (ef við á)

·     Kaup- og áskriftarsaga

·     Upplýsingar um aðgang að námskeiðum (WooCommerce / Teachable)

·     Greiðslustaðfestingar frá greiðslugátt (ekki kortanúmer)

·     Tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tala, vafri, tæki og notkun vefsíðu

Pixelmedia ehf. geymir ekki kortanúmer, CVV-númer eða aðrar viðkvæmar greiðsluupplýsingar.

3. Lagagrundvöllur og tilgangur vinnslu

Persónuupplýsingar eru unnar á eftirfarandi lagagrundvelli:

·     Samningur – til að afgreiða kaup, stofna notendaaðgang og veita aðgang að námskeiðum og áskriftum Gítarskólans.

·     Lögbundin skylda – t.d. vegna bókhalds og reikningsgerðar

·     Lögmætir hagsmunir – rekstur vefsíðu, öryggi, þjónustuumbætur og tölfræðileg greining.

Upplýsingar eru notaðar í eftirfarandi tilgangi:

·     Afgreiðsla kaupa í netverslun

·     Stofnun og umsýsla notendaaðgangs

·     Aðgangsstýring að stafrænu námsefni sem valið er

·     Samskipti vegna þjónustu, reikninga og tæknimála

·     Greining á notkun vefsíðu og kerfa

4. WooCommerce, Teachable og þriðju kerfi

Pixelmedia ehf. notar eftirfarandi kerfi við afhendingu þjónustu og samskipti:

·     WooCommerce – fyrir sölu á námskeiðum og stafrænum vörum

·     Teachable – fyrir hýsingu og afhendingu námskeiða og áskrifta

·     MailerLite – fyrir utanumhald póstlista og rafræna upplýsingagjöf til áskrifenda og nemenda

Persónuupplýsingar eru unnar í þessum kerfum að því marki sem nauðsynlegt er til að veita þjónustu, svo sem að veita aðgang að keyptri þjónustu, senda upplýsingar tengdar námskeiðum og áskriftum, eða eiga einstaklingsbundin samskipti við nemendur í gegnum hefðbundinn tölvupóst.

Vinnsla persónuupplýsinga í þessum kerfum fer fram í samræmi við vinnslusamninga og persónuverndarstefnur viðkomandi þjónustuaðila.

5. Vefkökur (cookies) og greining

Vefsíðan notar vefkökur og sambærilega tækni til að tryggja virkni netverslunar, innskráningar og aðgangsstýringar.

Við notum Google Analytics til að safna tölfræðilegum, að mestu leyti nafnlausum upplýsingum um notkun vefsíðunnar.

Notendur geta stjórnað vefkökum í vafra sínum. Takmörkun á vefkökum getur haft áhrif á virkni vefsíðunnar og netverslunar.

6. Miðlun persónuupplýsinga

Persónuupplýsingum er aðeins miðlað þegar það er nauðsynlegt til að veita þjónustu:

·     Greiðsluþjónustuaðilar (t.d. Teya)

·     Kennslu- og hýsingarkerfi (Teachable)

·     Hýsingar- og tækniaðilar vefsíðu

·     Greiningarþjónusta (Google Analytics)

Engin sala á persónuupplýsingum fer fram.

7. Geymslutími

Persónuupplýsingar eru geymdar:

·     Svo lengi sem viðskiptasamband er virkt

·     Svo lengi sem nauðsynlegt er til að uppfylla samningsskyldur við viðskiptavini Pixelmedia ehf.

·     Samkvæmt lögbundnum kröfum, m.a. bókhaldslögum

Þegar upplýsingar eru ekki lengur nauðsynlegar eru þær annaðhvort eyddar eða gerðar ópersónugreinanlegar.

8. Öryggi upplýsinga

Pixelmedia ehf. beitir viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingum, glötun eða misnotkun.

9. Réttindi notenda

Notendur geta sent skriflegar fyrirspurnir varðandi vinnslu persónuupplýsinga til Pixelmedia ehf.

Pixelmedia ehf. býður ekki upp á sjálfsafgreiðslu fyrir aðgang, breytingu eða eyðingu persónuupplýsinga. Allar beiðnir eru metnar hverju sinni í samræmi við gildandi lög, GDPR, lög nr. 90/2018 og lögmæta hagsmuni reksturs.

10. Breytingar á persónuverndarstefnu

Gítarskólinn áskilur sér rétt til að uppfæra persónuverndarstefnu þessa án fyrirvara. Uppfærð útgáfa verður birt á vefsíðu Gítarskólans.

11. Samskiptaupplýsingar

Fyrirspurnir varðandi persónuvernd skal senda á:

gitarskolinn(hja)gitarskolinn.is


Síðast uppfært: desember 2025